- Svíta fyrir tvo með morgunverði – ein nótt
- Svíturnar hafa sinn eigin heitan pott
- Gjafabréfin gilda í eitt ár en ekki á tímabilinu 1. júní – 31. ágúst
Afslöppun og rómantík fyrir tvo í lúxus svítu með einka heitum potti á Stracta Hótel. Í boði er gisting í eina nótt ásamt morgunverðarhlaðborði.
Svíturnar á Stracta eru ákaflega fallegar, rúmgóðar og bjartar. Þær eru smekklega hannaðar og innréttaðar með hámarks þægindi og vellíðan gesta okkar í huga á meðan dvöl þeirra stendur.
Um Stracta
Stracta Hótel á Hellu er búið fjölbreyttri og góðri aðstöðu til hvíldar og afþreyingar.
- Heitir pottar (svíturnar hafa sinn eigin heitan pott)
- Gufuböð
- Líkamsrækt
- Hestaleiga í göngufæri frá hótelinu
- Gönguleið niður að Ægissíðufossi
- Sundlaug í göngufæri frá hótelinu
- 18 holu golfvöllur í 6 mínútna akstursfjarlægð
- Fjórhjólaleiga í göngufæri frá hótelinu
- Nánari upplýsingar og bókanir í afþreyingu á info@stractahotels.is eða á vefsíðu Stracta
Gestir okkar geta nýtt sér heitu pottana og gufuböðin sem eru í hótelgarðinum. Matreiðslumennirnir leggja áherslu á hráefni úr næsta nágrenni eins og kostur er. Stracta Hótel leggur áherslu á jákvæða upplifun af gistingunni, veitingunum og þjónustunni í nánum tengslum við náttúruna. Hótelið er tilvalinn áningarstaður fyrir þá sem vilja upplifa og njóta þess sem Suðurland hefur upp á að bjóða.
Tengillinn hér við hliðina gefur góða 360° yfirsýn um svíturnar: http://www.stractahotels.is/360/
BISTRO
Bistro (Bar/Veitingastaður) er á jarðhæð hótelsins. Gestir okkar geta notið fjölda rétta, bæði í hádeginu og á kvöldin. Bistro veitingahúsið er góður kostur fyrir gesti með fjölbreytt úrval við hæfi hvers og eins. Opnunartími Bistro er: kl. 11:30 til 21:00 og hér má finna matseðilinn.
Smáa Letrið
- Gjafabréfið verður sent í tölvupósti stuttu eftir kaup (verð kemur ekki fram á gjafabréfinu).
- Til að bóka herbergi sendir handhafi númer gjafabréfs á info@stractahotels.is með ósk um dagsetningu.
- Gildir fyrir tvo í svítu.
- Innritun er frá kl. 15:00 og útritun er kl 12:00.
- Við innritun þarf að gefa upp kreditkortanúmer sem tryggingu við öðru en gjafabréfið nær til.
- Vinsamlegast athugið að afbóka þarf með 48 klst. fyrirvara, annars telst gjafabréfið notað.
- Frekari upplýsingar eru veittar í síma 531-8010 eða á info@stractahotels.is
- Gildistími: Eitt ár eftir greiðslu. Ekki er hægt að nota gjafabréfin í júní, júlí eða ágúst.