Menu Close

Þriggja rétta kvöldverður

8.500 kr.

Vöruflokkur:
  • Þriggja rétta kvöldverður fyrir einn
  • Gjafabréfin gilda í eitt ár en ekki á tímabilinu 1. júní – 31. ágúst

Þriggja rétta kvöldverðarmatseðill:

  • Forréttur: Parmaskinka á pönnuristuðu brauði með geitaostasósu og ferskri basilíku.
  • Aðalréttur: Lambafille með rauðvínssósu, kartöflugratíni og pönnusteiktu rótargrænmeti.
  • Eftirréttur: Skyrkaka með þeyttum rjóma, karamellusósu og ferskum berjum.

(Vegan kostur í boði)

Um Stracta

Stracta Hótel á Hellu er búið fjölbreyttri og góðri aðstöðu til hvíldar og afþreyingar.

  • Heitir pottar
  • Gufuböð
  • Líkamsrækt
  • Hestaleiga í göngufæri frá hótelinu
  • Gönguleið niður að Ægissíðufossi
  • Sundlaug í göngufæri frá hótelinu
  • 18 holu golfvöllur í 6 mínútna akstursfjarlægð
  • Fjórhjólaleiga í göngufæri frá hótelinu
  • Nánari upplýsingar og bókanir í afþreyingu á info@stractahotels.is eða á vefsíðu Stracta

Gestir okkar geta nýtt sér heitu pottana og gufuböðin sem eru í hótelgarðinum. Matreiðslumennirnir leggja áherslu á hráefni úr næsta nágrenni eins og kostur er. Stracta Hótel leggur áherslu á jákvæða upplifun af gistingunni, veitingunum og þjónustunni í nánum tengslum við náttúruna. Hótelið er tilvalinn áningarstaður fyrir þá sem vilja upplifa og njóta þess sem Suðurland hefur upp á að bjóða.

Tengillinn hér við hliðina gefur góða 360° yfirsýn um herbergin okkar: http://www.stractahotels.is/360/

Smáa Letrið

  • Gjafabréfið verður sent í tölvupósti stuttu eftir kaup (verð kemur ekki fram á gjafabréfinu).
  • Til að bóka máltíð sendir handhafi númer gjafabréfs á info@stractahotels.is með ósk um dagsetningu.
  • Gildir fyrir eina þriggja rétta máltíð.
  • Vinsamlegast athugið að afbóka þarf með 24 klst. fyrirvara, annars telst gjafabréfið notað.
  • Frekari upplýsingar eru veittar í síma 531-8010 eða á info@stractahotels.is
  • Gildistími: Eitt ár eftir greiðslu. Ekki er hægt að nota gjafabréfin í júní, júlí eða ágúst.