- Þriggja rétta kvöldverður fyrir einn
- Gjafabréfin gilda í eitt ár en ekki á tímabilinu 1. júní – 31. ágúst
Þriggja rétta kvöldverðarmatseðill:
- Forréttur: Parmaskinka á pönnuristuðu brauði með geitaostasósu og ferskri basilíku.
- Aðalréttur: Lambafille með rauðvínssósu, kartöflugratíni og pönnusteiktu rótargrænmeti.
- Eftirréttur: Skyrkaka með þeyttum rjóma, karamellusósu og ferskum berjum.
(Vegan kostur í boði)
Um Stracta
Stracta Hótel á Hellu er búið fjölbreyttri og góðri aðstöðu til hvíldar og afþreyingar.
- Heitir pottar
- Gufuböð
- Líkamsrækt
- Hestaleiga í göngufæri frá hótelinu
- Gönguleið niður að Ægissíðufossi
- Sundlaug í göngufæri frá hótelinu
- 18 holu golfvöllur í 6 mínútna akstursfjarlægð
- Fjórhjólaleiga í göngufæri frá hótelinu
- Nánari upplýsingar og bókanir í afþreyingu á info@stractahotels.is eða á vefsíðu Stracta
Gestir okkar geta nýtt sér heitu pottana og gufuböðin sem eru í hótelgarðinum. Matreiðslumennirnir leggja áherslu á hráefni úr næsta nágrenni eins og kostur er. Stracta Hótel leggur áherslu á jákvæða upplifun af gistingunni, veitingunum og þjónustunni í nánum tengslum við náttúruna. Hótelið er tilvalinn áningarstaður fyrir þá sem vilja upplifa og njóta þess sem Suðurland hefur upp á að bjóða.
Tengillinn hér við hliðina gefur góða 360° yfirsýn um herbergin okkar: http://www.stractahotels.is/360/
Smáa Letrið
- Gjafabréfið verður sent í tölvupósti stuttu eftir kaup (verð kemur ekki fram á gjafabréfinu).
- Til að bóka máltíð sendir handhafi númer gjafabréfs á info@stractahotels.is með ósk um dagsetningu.
- Gildir fyrir eina þriggja rétta máltíð.
- Vinsamlegast athugið að afbóka þarf með 24 klst. fyrirvara, annars telst gjafabréfið notað.
- Frekari upplýsingar eru veittar í síma 531-8010 eða á info@stractahotels.is
- Gildistími: Eitt ár eftir greiðslu. Ekki er hægt að nota gjafabréfin í júní, júlí eða ágúst.